Musa Barrow, fyrrum leikmaður Swansea, skoraði tvö fyrir Bologna. Hér fagnar hann marki með Gylfa Þór Sigurðssyni.
Roma 2 - 3 Bologna
0-1 Riccardo Orsolini ('16 )
1-1 Stefano Denswil ('22 , sjálfsmark)
1-2 Musa Barrow ('26 )
1-3 Musa Barrow ('51 )
2-3 Henrikh Mkhitaryan ('72 )
Rautt spjald: Bryan Cristante, Roma ('80)
0-1 Riccardo Orsolini ('16 )
1-1 Stefano Denswil ('22 , sjálfsmark)
1-2 Musa Barrow ('26 )
1-3 Musa Barrow ('51 )
2-3 Henrikh Mkhitaryan ('72 )
Rautt spjald: Bryan Cristante, Roma ('80)
Bologna gerði sér lítið fyrir með því að fara til höfuðborgar Ítalíu og vinna þar sigur á Roma í kvöld.
Riccardo Orsolini kom Bologna yfir á 16. mínútu, en þá entist forystan ekki lengi þar sem Roma jafnaði með sjálfsmarki á 22. mínútu.
Staðan var þó heldur ekki jöfn lengi þar sem Musa Barrow, fyrrum sóknarmaður Swansea, kom Bologna aftur yfir á 26. mínutu. Í byrjun seinni hálfleiks skoraði Barrow öðru sinni og kom Bologna í 3-1.
Henrikh Mkhitaryan, lánsmaður frá Arsenal, minnkaði muninn fyrir Roma á 72. mínútu, en lengra komust heimamenn ekki. Rautt spjald sem miðjumaðurinn Bryan Cristante fékk á 80. mínútu gerði Roma erfitt fyrir í að jafna leikinn.
Bologna fer með þessum sigri úr 11. sæti í það sjötta. Roma er áfram í fimmta sæti, með jafnmörg stig og Atalanta sem er í fjórða sæti.
Athugasemdir