Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 07. febrúar 2020 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía um helgina - Montrétturinn í húfi í Mílanó
Inter er í öðru sæti deildarinnar.
Inter er í öðru sæti deildarinnar.
Mynd: Getty Images
Á sunnudaginn verður sannkallaður stórleikur í ítölsku úrvalsdeildinni. Inter og AC Milan munu í síðasta leik helgarinnar eigast við í baráttunni um Mílanó.

Fyrir leikinn er Inter í öðru, þremur stigum á eftir Juventus. AC Milan er í áttunda sæti að reyna að koma sér inn í Evrópubaráttuna.

Leikurinn er klukkan 19:45 á sunnudagskvöld, en öll 23. umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar fer fram þessa helgina.

Umferðin byrjar í kvöld með leik Roma og Bologna í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Þrír leikir eru á laugardaginn og sex leikir á sunnudaginn. Birkir Bjarnason og félagar í Brescia mæta Udinese á sunnudaginn. Í vikunni var Eugenio Corini rekinn frá Brescia í annað sinn á tímabilinu. Diego Lopez, fyrrum þjálfari Bologna og Cagliari, er tekinn við stjórnartaumunum hjá Brescia, sem er í 19. sæti.

föstudagur 7. febrúar
19:45 Roma - Bologna (Stöð 2 Sport 2)

laugardagur 8. febrúar
14:00 Fiorentina - Atalanta (Stöð 2 Sport 4)
17:00 Torino - Sampdoria
19:45 Verona - Juventus (Stöð 2 Sport)

sunnudagur 9. febrúar
11:30 Spal - Sassuolo
14:00 Genoa - Cagliari
14:00 Brescia - Udinese (Stöð 2 Sport 3)
14:00 Napoli - Lecce
17:00 Parma - Lazio (Stöð 2 Sport 3)
19:45 Inter - Milan (Stöð 2 Sport 2)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 33 17 7 9 59 39 +20 58
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 33 4 16 13 31 50 -19 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner