Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 07. febrúar 2020 20:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikarinn: Birnir Snær tryggði HK sigur á FH
Birnir Snær skoraði sigurmarkið.
Birnir Snær skoraði sigurmarkið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Steven Lennon kom inn á hjá FH.
Steven Lennon kom inn á hjá FH.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
HK 1 - 0 FH
1-0 Birnir Snær Ingason ('78)

HK virðist hafa gott tak á FH. HK-ingar höfðu betur gegn Fimleikafélaginu í Lengjubikarnum í Kórnum í kvöld.

Það var Birnir Snær Ingason sem skoraði eina mark leiksins á 79. mínútu. Hann skoraði með laglegu skoti á fjær eins og honum er einum lagið.

Steven Lennon kom inn á í fyrsta leik sínum með FH í vetur.

HK vann FH í Fótbolta.net mótinu, 2-1. Þá hafði Kópavogsfélagið betur gegn Fimleikafélaginu í síðari leik liðanna í Pepsi Max-deildinni síðasta sumar. FH vann fyrri leikinn í Kaplakrika.

Grindavík, Grótta, Þór og Þróttur R. eru með FH og HK í riðli í Lengjubikarnum.

Byrjunarlið HK: 25. Arnar Freyr Ólafsson (m), 2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson, 4. Leifur Andri Leifsson, 6. Birkir Valur Jónsson, 7. Birnir Snær Ingason, 10. Ásgeir Marteinsson, 18. Atli Arnarson, 20. Alexander Freyr Sindrason, 22. Jón Kristinn Ingason, 28. Patrik Hermansson, 29. Valgeir Valgeirsson.

Varamannabekkur HK: Hjörvar Daði Arnarsson (m), Ívar Orri Gissurarson, Andri Már Harðarson, Emil Skorri Þ. Brynjólfsson, Breki Muntaga Jallow.

Byrjunarlið FH: 24. Daði Freyr Arnarsson (m), 5. Hjörtur Logi Valgarðsson, 9. Jónatan Ingi Jónsson, 10. Björn Daníel Sverrisson, 11. Atli Guðnason, 14. Morten Beck Guldsmed, 15. Þórður Þorsteinn Þórðarson, 16. Guðmundur Kristjánsson, 21. Guðmann Þórisson, 27. Jóhann Ægir Arnarsson, 34. Logi Hrafn Róbertsson.

Varamannabekkur FH: Vilhelm Þráinn Sigurjónsson (m), Róbert Thor Valdimarsson, Steven Lennon, Arnar Sigþórsson, Brynjar Ásgeir Guðmundsson, Kristján Ólafsson, Haukur Leifur Eiríksson.

Sjá einnig:
Lengjubikarinn: Blikar unnu Leikni R. í opnunarleiknum
Athugasemdir
banner
banner
banner