Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 07. febrúar 2020 10:00
Magnús Már Einarsson
Man Utd lækkar verðmiða Pogba - Arteta ætlar að taka til
Powerade
Paul Pogba.
Paul Pogba.
Mynd: Getty Images
Lallana er eftirsóttur.
Lallana er eftirsóttur.
Mynd: Getty Images
Föstudagsslúðrið er mætt. BBC tók pakkann saman.



Manchester Unied hefur lækkað verðmiða sinn á Paul Pogba (26) um 30 milljónir punda. Hann má fara frá félaginu á 150 milljónir punda. (Sun)

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, ætlar að hrista hressilega upp í hópnum í sumar. Arteta mun líklega selja Pierre-Emerick Aubameyang (30), Alexandre Lacazette (28) og Mesut Özil (31). (Sun)

Barcelona er að íhuga að fá Adama Traore (24) aftur í sínar raðir frá Wolves. (Mail)

Lautaro Martinez (22) framherji Inter, ætlar að hafna Manchester City og Manchester United og ganga í raðir Barcelona. (Star)

Manchester United hefur útilokað að fá Martinez því hann kostar 94 milljónir punda. (Times)

Adam Lallana (31) miðjumaður Liverpool er á óskalista Leicester, Tottenham, Arsenal og West Ham en hann verður samningslaus í sumar. (Telegraph)

Japhet Tanganga (20), varnarmaður Tottenham, gæti fengið 1500% launahækkun hjá félaginu. Tanganga er í dag með 1000 pund á viku. (Mail)

Everton er ekki á eftir Everton Soares (23) framherja Gremio þrátt fyrir fréttir þess efnis. (Liverpool Echo)

Manchester United er ekki tilbúið að selja Chris Smalling (30) á minna en 15 milljónir punda. Smalling er í láni hjá Roma í dag. (Team Talk)

Les Ferdinand segist hafa orðið fyrir kynþáttafordómum frá stuðningsmönnum QPR en hann er yfirmaður fótboltamála hjá félaginu. (Evening Standard)

Leikmenn Liverpool fá meira en fjórar milljónir punda í bónus ef þeir verða enskir meistarar. (Mail)

Eiginkona Krzysztof Piatek, framherja Hertha Berlin, segir ekki rétt að Tottenham hafi ekki viljað fá hann í sínar raðir. (Sport Witness)

Barcelona er að íhuga að kaupa Carl Rushworth (18) markvörð Brighton á fjórar milljónir punda. (Mirror)
Athugasemdir
banner
banner