Hollenski sóknarmaðurinn Ricky van Wolfswinkel er byrjaður að æfa með félagi sínu, Basel í Sviss, sjö mánuðum eftir að hann greindist með slagæðargúlp í heila.
„Meðferðin gekk samkvæmt plani," sagði í tilkynningu á heimasíðu Basel.
Upp komst um sjúkdóminn þegar hinn 31 árs gamli Van Wolfswinkel fór í skoðun eftir að hann fékk heilahristing. Heilahristingurinn hafði ekkert með veikindin að gera samkvæmt BBC.
Van Wolfswinkel, sem er fyrrum sóknarmaður Norwich og Sporting Lissabon, birti myndband af sér á Instagram þar sem hann sagðist vera klár í slaginn.
Athugasemdir