Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 07. mars 2020 11:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Liverpool og Bournemouth: Vantar Alisson og Robertson
Milner byrjar í vinstri bakverði hjá Liverpool.
Milner byrjar í vinstri bakverði hjá Liverpool.
Mynd: Getty Images
Klukkan 12:30 hefst fyrsti leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni, leikur Liverpool og Bournemouth.

Liverpool hefur ekki verið að spila sinn besta fótbolta eftir vetrarfrí og hefur tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum. Liðið stefnir þrátt fyrir það hraðbyrði í átt að Englandsmeistaratitlinum. Bournemouth hefur ekki unnið í síðustu þremur leikjum sínum og er sem stendur í fallsæti.

Adrian er áfram í marki Liverpool þar sem Alisson er meiddur. Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, gerir sex breytingar frá 2-0 bikartapinu gegn Chelsea í vikunni.

Alexander-Arnold, Milner, Salah, Firmino, Oxlade-Chamberlain og Wijnaldum koma inn í byrjunarliðið frá leiknum gegn Chelsea. Andy Robertson er fjarverandi.

Bournemouth gerir eina breytingu frá 2-2 jafnteflinu um síðustu helgi. Joshua King er ekki með í dag og byrjar Junior Stanislas í hans stað.

Hér að neðan eru byrjunarliðin.

Byrjunarlið Liverpool: Adrian, Alexander-Arnold, Van Dijk, Gomez, Milner, Fabinho, Wijnaldum, Oxlade-Chamberlain, Salah, Firmino, Mane.
(Varamenn: Lonergan, Keita, Minamino, Lallana, Origi, Matip, Williams)

Byrjunarlið Bournemouth: Ramsdale, Stacey, S Cook, Ake, Smith, Billing, Lerma, L Cook, Fraser, Stanislas, Wilson.
(Varamenn: Boruc, Gosling, Surman, Solanke, Rico, Simpson, Surridge)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner