Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 07. mars 2020 17:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Daníel Hafsteins á leiðinni til FH?
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Daníel Hafsteinsson, leikmaður Helsingborg í Svíþjóð, er sagður vera á leið til Hafnarfjarðar, nánar tiltekið til liðs við FH.

Daníel gekk í raðir Helsingborg frá KA í fyrra og var hann áður orðaður við félagaskipti til Vals. Leifur Garðarson rifjar þá sögu upp og kemur inn á möguleikan á því að Daníel sé á leið til FH.

„Daníel Hafsteinsson hefði kostað Val 10 milljónir fyrir ári síðan, fór þá til Helsinborg. Er nú á leið í Kaplakrika segir sagan," skrifaði Leifur á Twitter.

Daníel er spennnandi miðjumaður sem er uppalinn á Akureyri. Daníel er U21 árs landsliðsmaður og hefur skorað sex mörk í 48 leikjum hér á landi.

Hjá Helsingborg var hann einu sinni í byrjunarliðinu á síðustu leiktíð í deildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner