Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 07. mars 2020 17:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
England: Patrik varði mark Southend í langþráðum sigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í ensku League One, C-deildinni, var Patrik Sigurður Gunnarsson í marki Southend. Patrik var í dag að leika sinn þriðja leik með Southend en hann er á láni frá Brentford.

Mikið var um vandræði þegar kom að markvarðastöðunni hjá Southend og fékk félagið Patrik á svokölluðu neyðarláni. Markvarðarstaðan er ekki eina vandamálið hjá félaginu því fyrir leikinn í dag hafði liðið tapað sex leikjum í dag og er í bullandi fallhættu.

Southend vann í dag gegn Bristol Rovers sem verður að teljast langþráður sigur. Southend komst yfir en gestirnir frá Bristol jöfnuðu á 46. mínútu.

Terrell Egbri kom heimamönnum yfir og svo skoruðu gestirnir sjálfsmark sem innsiglaði heimasigur. Sol Campbell er stjóri Southend og Hermann Hreiðarsson er aðstoðarmaður Campbell.

Í sömu deild var Ísak Snær Þorvaldsson á varamannabekknum þegar Fleetwood gerði 0-0 jafntefli gegn Blackpool. Stöðuna í deildinni má sjá hér að neðan.
Stöðutaflan England 1. deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Portsmouth 45 27 13 5 76 41 +35 94
2 Derby County 45 27 8 10 76 37 +39 89
3 Bolton 45 25 11 9 83 48 +35 86
4 Peterboro 44 25 8 11 86 56 +30 83
5 Barnsley 45 21 12 12 81 63 +18 75
6 Lincoln City 45 20 14 11 65 38 +27 74
6 Cambridge City 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Oxford United 45 21 11 13 77 55 +22 74
8 Blackpool 45 21 10 14 63 45 +18 73
9 Stevenage 45 18 14 13 55 45 +10 68
10 Leyton Orient 45 17 11 17 50 54 -4 62
11 Wycombe 44 16 13 15 58 54 +4 61
12 Exeter 45 17 10 18 45 59 -14 61
13 Wigan 45 19 10 16 61 56 +5 59
14 Northampton 45 17 8 20 56 65 -9 59
15 Bristol R. 45 16 9 20 52 66 -14 57
16 Charlton Athletic 45 11 20 14 64 64 0 53
17 Reading 45 15 11 19 65 68 -3 50
18 Shrewsbury 45 13 9 23 34 64 -30 48
19 Cambridge United 44 12 10 22 38 60 -22 46
20 Burton 45 12 10 23 39 64 -25 46
21 Cheltenham Town 44 11 8 25 38 63 -25 41
22 Fleetwood Town 45 9 13 23 46 72 -26 40
23 Port Vale 45 10 10 25 41 74 -33 40
24 Carlisle 45 7 9 29 41 79 -38 30
24 Forest Green 46 6 9 31 31 89 -58 27
Athugasemdir
banner
banner