Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 07. mars 2020 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvað myndir þú gera? Demba Ba: Skora
Ba fagnar markinu fræga gegn Liverpool.
Ba fagnar markinu fræga gegn Liverpool.
Mynd: Getty Images
Hinn 34 ára gamli Demba Ba leikur nú með İstanbul Başakşehir í Tyrklandi.

Hann lék á árum áður í ensku úrvalsdeildinni með West Ham, Newcastle og Chelsea.

Tímabilið 2013/14 má segja að eftirminnilegasta augnablikið á ferli Ba hafi átt sér stað. Þá var hann í leik með Chelsea gegn Liverpool og nýtti hann sé mistök Steven Gerrard til að kom Chelsea 1-0 yfir. Chelsea vann leikinn að lokum 2-0.

Liverpool var það tímabil í harðri titilbaráttu og átti tapið gegn Chelsea stóran þátt í að liðið vann á endanum ekki titilinn.

Ba svaraði áðan myndbandi á Twitter þar sem leikmaður futsal rennur og andstæðingurinn sparkar boltanum út af. Yfirskrift myndbandsins er: „Hvað myndir þú gera?"

Ba svarar því einfaldlega: „Skora." Eins og hann gerði á Anfield 2014.


Athugasemdir
banner
banner