Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 07. mars 2020 13:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kasakstan: Rúnar byrjar tímabilið af krafti
Mynd: Getty Images
Landsliðsmaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson byrjar tímabilið í Kasakstan á marki.

Astana vann stórsigur á Kyzyl-Zhar í 1. umferð deildarinnar, lokatölur voru 4-0.

Öll mörk Astana komu í síðari hálfleiknum og skoraði Rúnar Már þriðja markið á 88. mínútu. Eftir þennan góða sigur er Astana á toppnum á markatölu.

Rúnar er 29 ára gamall, en han kom til Astana frá Grasshopper í Sviss á síðasta ári. Á sinni fyrstu leiktíð gerði han sjö mörk í 23 keppnisleikjum með Astana.

Rúnar verður eflaust í landsliðshópi Íslands sem tekur þátt í umspili fyrir EM síðar í þessum mánuði.
Athugasemdir
banner
banner
banner