Augnablik 11 - 0 Álftanes
Mörk Augnabliks: Ísafold Þórhallsdóttir 3, Vigdís Lilja Kristjánsdóttir 2, Birta Birgisdóttir 2, Eyrún Vala Harðardóttir, Þórdís Katla Sigurðardóttir, Hildur Lilja Ágústsdóttir, Hugrún Helgadóttir.
Mörk Augnabliks: Ísafold Þórhallsdóttir 3, Vigdís Lilja Kristjánsdóttir 2, Birta Birgisdóttir 2, Eyrún Vala Harðardóttir, Þórdís Katla Sigurðardóttir, Hildur Lilja Ágústsdóttir, Hugrún Helgadóttir.
Augnablik fór ansi illa með Álftanes þegar liðin mættust í C-deild Lengjubikars kvenna í gær.
Augnablik lék svo sannarlega á als oddi í fyrri hálfleiknum og var staðan 9-0 að honum loknum. Ísafold Þórhallsdóttir fór fyrir sínu liði og gerði þrennu.
Augnablik hafði aðeins hægara um sig í síðari hálfleik og urðu lokatölur 11-0 í Fífunni.
Bæði lið voru að leika sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum í ár. Augnablik er í 1. deild kvenna og Álftanes í 2. deild.
Athugasemdir