Víkingur R. 6 - 0 KA
Mörk Víkings: Óttar Magnús Karlsson x3,
Atli Hrafn Andrason, Örvar Eggertsson og
Viktor Örlygur Andrason.
Mörk Víkings: Óttar Magnús Karlsson x3,
Atli Hrafn Andrason, Örvar Eggertsson og
Viktor Örlygur Andrason.
Víkingur mætti KA á Víkingsvelli í riðli 2 í A-deild Lengjubikarsins í dag. Víkingar, í stuttu máli sagt, völtuðu yfir gestina frá Akureyri.
Staðan var 3-0 í hálfleik og var Óttar Magnús kominn með tvö. Á 54. fullkomnaði hann þrennu sína og í kjölfarið bættu Viktor Örlygur og Örvar Eggertsson við mörkum. Í fyrri hálfleik var það Atli Hrafn sem skoraði á milli marka Óttars.
Víkingur er á toppi riðils 2 með fullt hús stiga, 12 stig. KA er með fjögur stig eftir fjóra leiki.
Athugasemdir