Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 07. mars 2020 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu mörk Elíasar - Vekur athygli stærri félaga
Elías Már Ómarsson.
Elías Már Ómarsson.
Mynd: Getty Images
Elías Már Ómarsson hefur verið að standa sig mjög vel með Excelsior í hollensku B-deildinni.

Í gær skoraði hann tvö mörk er Excelsior vann MVV Maastricht 3-0. Elías hefur alls skorað níu mörk eftir áramót, og alls hefur hann skorað 12 mörk í 28 deildarleikjum.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net. er Elías farinn að vekja athygli stærri félaga í Hollandi, sem og félaga í Englandi og Þýskalandi með frammistöðu sinni. Það má ekki gleyma því að það var tekinn úr honum botnlanginn í byrjun tímabilsins og var hann frá í nokkrar vikur vegna þess.

Excelsior er í sjöunda sæti deildarinnar og er að berjast um umspilssæti.

Með því að smella hérna er hægt að sjá mörk Elíasar frá því í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner