Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 07. mars 2020 19:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þýskaland: Haaland og Sancho lögðu upp í sigri Dortmund
Mynd: Getty Images
Borussia M. 1 - 2 Borussia D.
0-1 Thorgan Hazard ('8 )
1-1 Lars Stindl ('50 )
1-2 Achraf Hakimi ('71 )

Lokaleikur dagsins í þýsku Bundesliga fór fram á Borussia-Park í Mönchengladbach í kvöld. Þar mætti Dortmund í heimsókn.

Gestirnir komust yfir á 8. mínútu þegar Thorgan Hazard skoraði eftri stoðsendingu frá Erling Braut Haaland. Lars Stindl jafnaði leikinn fyrir heimamenn á 50. mínútu en það var svo Hakimi sem tryggði gestunum stigin þrjú eftir sendingu frá Jadon Sancho.

Þetta var fimmti sigur Dortmund í röð í öllum keppnum og sá áttundi í tíu leikjum. Haaland, sem hefur verið iðinn við kolann hjá Dortmund, fékk gott færi á 86. mínútu en skaut yfir mark heimamanna.

Gladbach sem var á tímabili á toppi deildarinnar er nú sex stigum frá toppsætinu en Bayern sem þar situr á leik til góða sem fer fram á morgun.

Andri Rúnar kom við sögu
Í þriðju efstu deild var Andri Rúnar Bjarnason mættur aftur í leikmannahóp Kaiserslautern eftir fjarveru.

Andri Rúnar lék síðustu mínúturnar í 3-3 jafntefli gegn Meppen. Kaiserslautern er í 14. sæti deildarinnar.

Andri hafði ekki verið í hópnum í síðustu þremur leikjum og hefur verið mikið inn og út úr hóp eftir áramót.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 30 25 5 0 75 20 +55 80
2 Bayern 30 21 3 6 87 37 +50 66
3 Stuttgart 30 20 3 7 68 36 +32 63
4 RB Leipzig 30 18 5 7 69 34 +35 59
5 Dortmund 30 16 9 5 58 35 +23 57
6 Eintracht Frankfurt 30 11 12 7 46 40 +6 45
7 Freiburg 30 11 7 12 42 53 -11 40
8 Augsburg 30 10 9 11 48 49 -1 39
9 Hoffenheim 30 11 6 13 53 60 -7 39
10 Heidenheim 30 8 10 12 43 52 -9 34
11 Werder 30 9 7 14 38 50 -12 34
12 Gladbach 30 7 10 13 53 60 -7 31
13 Wolfsburg 30 8 7 15 35 50 -15 31
14 Union Berlin 30 8 5 17 26 50 -24 29
15 Mainz 30 5 12 13 31 48 -17 27
16 Bochum 30 5 12 13 34 60 -26 27
17 Köln 30 4 10 16 23 53 -30 22
18 Darmstadt 30 3 8 19 30 72 -42 17
Athugasemdir
banner
banner