Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 07. mars 2020 15:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
U19 kvenna valtaði yfir Ítalíu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U19 landsliðs kvenna valtaði yfir Ítalíu í æfingaleik sem fram fór á La Manga á Spáni.

Staðan í hálfleik var 2-1 fyrir Ísland, en íslenska liðið gekk á lagið í síðari hálfleik og skoraði fimm mörk. Karen María Sigurgeirsdóttir úr Þór/KA og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir úr Breiðabliki skoruðu báðar tvennu.

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir úr Breiðabliki, Barbára Sól Gísladóttir úr Selfossi og Linda Líf Boama úr Þrótti R. skoruðu einnig fyrir Ísland. Lokatölur 7-1 fyrir Ísland.

Flottur sigur hjá Íslandi sem mætir Þýskalandi í lokaleik sínum á La Manga á mánudag.

Byrjunarlið Íslands:
Cecilía Rán Rúnarsdóttir (M)
Valgerður Ósk Valsdóttir
Katla María Þórðardóttir (F)
Arna Eiríksdóttir
Íris Una Þórðardóttir
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
Karen María Sigurgeirsdóttir
Ída Marín Hermannsdóttir
Hafrún Rakel Halldórsdóttir
Birta Georgsdóttir
Linda Líf Boama


Athugasemdir
banner