Willum Þór Willumsson, leikmaður BATE Borisov í Hvíta-Rússlandi, var á skotskónum í 3-2 sigri liðsins á Gomel í æfingaleik í gær.
Willum samdi við BATE í febrúar á síðasta ári en hann spilaði 21 leik, skoraði 2 mörk og lagði upp 1 á fyrsta tímabilinu.
Hann er þegar kominn með eitt mark í bikarnum á þessu tímabili en liðið lék síðasta æfingaleikinn í gær áður en deildin hefst eftir tvo daga.
Hann spilaði fyrri hálfleikinn og skoraði annað mark BATE í 3-2 sigri á Gomel með góðu skoti frá vítateigshorni.
BATE mætir Dinamo Minsk í fyrstu umferð deildarinnar.
Athugasemdir