Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 07. mars 2021 22:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Þetta er kæruleysi og mér finnst óafsakanlegt að spila svona"
Salah í leiknum í dag.
Salah í leiknum í dag.
Mynd: Getty Images
Liverpool tapaði sínum sjötta heimaleik í röð í dag er liðið fékk Fulham í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni.

Mario Lemina skoraði eina mark leiksins á síðustu stundu í fyrri hálfleik. Hann vann boltann af Mohamed Salah og kláraði mjög vel.

Hægt er að sjá sigurmark Fulham í leiknum hérna.

Farið var yfir markið í leiknum í sjónvarpsþættinum Vellinum á Síminn Sport. Bjarni Þór Viðarsson, fyrrum fyrirliði U21 landsliðsins, og Margrét Lára Viðarsdóttir, ein besta fótboltakona sem Ísland hefur alið, þóttu Salah ekki koma vel út úr markinu.

„Þetta er eitthvað svo veikt þessi varnarleikur," sagði Bjarni Þór.

„Salah, það er vonlaust að ná af honum boltanum. Hann er einn sá besti í því að halda og skýla bolta. Þetta er kæruleysi og mér finnst þetta bara óafsakanlegt að spila svona," sagði Margrét Lára.
Athugasemdir
banner
banner
banner