Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   sun 07. apríl 2019 22:20
Sverrir Örn Einarsson
Jói Kalli: Sárir og svekktir að tapa
Jóhannes Karl þjálfari ÍA
Jóhannes Karl þjálfari ÍA
Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir
Skagamenn lutu í lægra haldi fyrir KR í úrslitaleik Lengjubikarsins í kvöld en úrslit urðu 2-1 fyrir vesturbæingum. Skagamenn hafa verið á mikilli siglingu á undirbúningstímabilinu og gætu komið á óvart í Pepsi-Max deildinni í sumar,

Lestu um leikinn: ÍA 1 -  2 KR

„Við erum mjög sárir og svekktir að hafa tapað þessum leik því að á stórum köflum í leiknum þá vorum við með yfirhöndina og sérstaklega í síðari hálfleik voru Kr-ingar ekki að skapa sér nein færi.“

Sagði Jói Kalli um það hvernig hann meti leikinn hjá sínum mönnum í kvöld.

Skagamenn hafa farið mikin á undirbúningstímabilinu og er skemmst að minnast 6-0 sigri þeirra á Stjörnunni í Lengjubikarnum. Þeir ætla sér ekkert að verða fallbyssufóður sem nýliðar í deildinni?

„Nei alls ekki. Við höfum trú á því sem við erum að gera og leikurinn í dag var bara mjög góður af okkar hálfu en það sýnir sig líka að góð lið sem eru með góða einstaklinga geta refsað fyrir klaufaleg mistök.“

Nú þegar stutt er í mót og menn að ná toppformi fyrir sumarið. Hvernig er staðan á leikmannahópi Skagamanna?

„Það voru 2-3 leikmenn sem voru ekki alveg 100% klárir fyrir leikinn í dag þannig að við tókum ekkert sénsinn á því að vera láta þá byrja en það eru 90+% af hópnum sem eru í toppstandi og verða klárir þegar deildinn byrjar,“

Sagði Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA en nánar er rætt við hann í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner