Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var gríðarlega hress eftir 4-0 sigur á Barcelona í Meistaradeildinni. Liverpool tapaði fyrri leiknum 3-0 en kom til baka í kvöld.
„Þetta var alltof mikið," sagði Klopp við BT Sport eftir leikinn.
„Ég sagði við strákana fyrir leikinn að þetta ætti að vera ómögulegt, 'en þar sem þetta eruð þið þá eigum við möguleika.' Ég hef horft á marga fótboltaleiki og ég man ekki eftir öðru eins gegn kannski besta liði í heiminum."
„Ég veit ekki hvernig strákarnir fóru að þessu. Það var ótrúlegt hvernig við vörðumst."
„Flest börn eru örugglega komin í rúmið og því segi ég að þessir strákar eru fjandans (e. fucking) risar. Sektið mig ef þið viljið. Ég er ekki innfæddur og veit því ekki hvaða orð ég á að nota."
Love everything about Jurgen Klopp and everything he stands for. What an interview 😂 pic.twitter.com/1KP3RQWdOU
— Matt Lynch (@mattlyynch) May 7, 2019
Athugasemdir