Tvö meistaraflokkslið hættu við keppni
Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, hefur staðið í ströngu undanfarna daga við að endurraða öllum leikjum á Íslandsmóti meistaraflokka og yngri flokka. Frestunin kemur til vegna kórónaveirunnar.
KSÍ skipuleggur 1170 leiki í meistaraflokki í sumar og 3780 leiki í yngri flokkunum.
Samtals eru 79 lið í deildarkeppni karla eftir að félagið Skandinavía hætti við þátttöku í 4. deild í gær.
Leiknir R. hætti við þátttöku í 2. deild kvenna og því eru 29 lið þar í ár.
Í yngri flokkum karla eru 370 lið skráð til leiks og 190 lið eru skráð í yngri flokkum kvenna.
KSÍ mannar 3800 dómarastörf í sumar en önnur dómarastörf eru mönnuð af félögunum.
Athugasemdir