Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 07. maí 2021 18:44
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Þriðji sigurleikur Darmstadt í röð
Guðlaugur Victor er lykilmaður í liði Darmstadt
Guðlaugur Victor er lykilmaður í liði Darmstadt
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í Darmstadt unnu Hannover 2-1 í þýsku B-deildinni í kvöld en þetta var þriðji sigurleikur liðsins í röð.

Guðlaugur Victor var eins og vanalega í byrjunarliði Darmstad og spilaði allan leikinn en hann nældi sér í gult spjald á 16. mínútu.

Hann hefur verið að spila feykivel með liðinu undanfarið en það hefur aðeins tapað einum af síðustu níu leikjum liðsins.

Darmstadt er að enda tímabilið afar vel en liðið á aðeins tvo leiki eftir og er í baráttu um 6. sæti deildarinnar.

Liðið er sem stendur í 9. sæti með 45 stig, þremur stigum á eftir Heidenheim sem er í 6. sætinu.
Athugasemdir
banner