Fotbolti.net
07.05.22 - 20:31
Brynjar Ingi Erluson

Þýskaland: Union blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna

Union Berlín ætlar að blanda sér í Meistaradeildarbaráttuna

Union Berlín ætlar að blanda sér í Meistaradeildarbaráttuna

Canon

Mynd: EPA

Union Berlín á nú raunhæfan möguleika á að komast í Meistaradeild Evrópu eftir að hafa unnið Freiburg 4-1 í þýsku deildinni í dag en allt mun það ráðast í lokaumferðinni.
Freiburg þurfti sigur gegn Union til að gulltryggja sæti sitt í Meistaradeildina en nú er búið að opna þá baráttu upp á gátt eftir að Union vann öruggan sigur í dag.

Liðið komst þremur mörkum yfir í fyrri hálfleik áður en Lucas Holer minnkaði muninn þegar hálftími var eftir. Andras Schafer gerði svo fjórða og síðasta mark Union og er liðið nú með 54 stig í 6. sæti deildarinnar.

RB Leipzig er í 5. sæti með 54 stig, stigi á eftir Freiburg og á leik til góða.

Bayer Leverkusen er öruggt með sæti í Meistaradeildinni en liðið vann Hoffenheim 4-2. Patrik Schick gerði tvö mörk fyrir Leverkusen sem er í þriðja sæti með 61 stig.

Hertha Berlín tapaði þá fyrir Mainz, 2-1. Þessi úrslit gefa Stuttgart von, sem er í 16. sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir Herthu og þá á liðið leik til góða.

Úrslit og markaskorarar:

Freiburg 1 - 4 Union Berlin
0-1 Grischa Promel ('11 )
0-2 Christopher Trimmel ('30 )
0-3 Sheraldo Becker ('41 )
1-3 Lucas Holer ('59 )
1-4 Andras Schafer ('90 )

Hoffenheim 2 - 4 Bayer
1-0 Georginio Rutter ('22 )
1-1 Patrik Schick ('34 )
2-1 Christoph Baumgartner ('36 )
2-2 Moussa Diaby ('73 )
2-3 Patrik Schick ('76 )
2-4 Lucas Alario ('90 )

Hertha 1 - 2 Mainz
0-1 Silvan Widmer ('25 )
1-1 Davie Selke ('45 , víti)
1-2 Stefan Bell ('81 )

Koln 0 - 1 Wolfsburg
0-1 Yannick Gerhardt ('43 )

Greuther Furth 1 - 3 Borussia D.
0-1 Julian Brandt ('26 )
1-1 Jessic Ngankam ('70 )
1-2 Julian Brandt ('72 )
1-3 Felix Passlack ('77 )

Bochum 2 - 1 Arminia Bielefeld
1-0 Sebastian Polter ('21 )
1-1 Joakim Nilsson ('35 )
2-1 George Bello ('89, sjálfsmark )
Patrik Schick skoraði tvö fyrir Leverkusen sem mun spila í Meistaradeildinni á næstu leiktíð

Patrik Schick skoraði tvö fyrir Leverkusen sem mun spila í Meistaradeildinni á næstu leiktíð

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Bayern1+43
2Freiburg1+33
3Augsburg1+33
4RB Leipzig1+33
5Dortmund1+23
6Köln1+13
7Elversberg1+13
8Union Berlin101
9Frankfurt101
10Mainz101
11Paderborn101
12Leverkusen1-10
13Hoffenheim1-10
14Hamburger1-20
15Werder1-30
16Schalke 041-30
17Gladbach1-30
18Stuttgart1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.