Það er búið að finna nýjan leiktíma fyrir tvo leiki sem voru færðir út af leikjum A-landsliðsins.
KA – Breiðablik 7. júní kl. 18.00 Leik frestað.
FH – Keflavík 7. júní kl. 19.15 Leik frestað.
Brynjar Ingi Bjarnason, leikmaður KA, Gísli Eyjólfsson, leikmaður Breiðabliks, Ísak Óli Ólafsson, leikmaður Keflavíkur og Þórir Jóhann Helgason, leikmaður FH, eru í A-landsliðshópnum. Þórir er reyndar farinn heim og spilar ekki gegn Póllandi á morgun.
Nýr leiktími þessara leikja er fimmtudagurinn 29. júlí, rétt fyrir Verslunarmannahelgi. Svo fá menn væntanlega að skemmta sér eftir það.
Það er einn leikur í Pepsi Max-deildinni í kvöld þar sem Valur tekur á móti Víkingi Reykjavík á Hlíðarenda. Það verður auðvitað bein textalýsing hér á Fótbolta.net.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir