Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 07. júní 2021 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland í dag - Víkingur R. mætir toppliði Vals
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Einn leikur er á dagskrá í Pepsi Max-deild karla í kvöld en Valur fær Víking R. í heimsókn á Origo-völlinn klukkan 20:00.

Valur er á toppnum í deildinni með 16 stig eftir fyrstu fimm leikina á meðan Víkingur er í öðru sæti með 14 stig. Það má því gera ráð fyrir mikilli skemmtun þegar liðin eigast við í kvöld.

KR mætir þá Grindavík í Lengjudeild kvenna og þá eru þrír leikir á dagskrá í 2. deild kvenna.

Hægt er að sjá alla leiki dagsins hér fyrir neðan.

Leikir dagsins:

Pepsi Max-deild karla
20:00 Valur-Víkingur R. (Origo völlurinn)

Lengjudeild kvenna
19:15 KR-Grindavík (Meistaravellir)

2. deild kvenna
19:15 Fjölnir-ÍR (Extra völlurinn)
19:15 Fram-SR (Framvöllur)
19:15 Völsungur-Einherji (Vodafonevöllurinn Húsavík)

4. deild karla - A-riðill
20:00 Berserkir-GG (Víkingsvöllur)
20:00 Kría-Árborg (Vivaldivöllurinn)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner