Króatíski hægri bakvörðurinn Sime Vrsaljko bauð upp á stórfurðulega tæklingu undir lok leiks gegn Belgíu í vináttulandsleik í gær.
Romelu Lukaku skoraði sigurmarkið í leik liðanna en þetta var síðasti leikur liðanna fyrir Evrópumótið.
Þetta var stál í stál leikur en virðist þó eitthvað hafa farið illa í króatíska bakvörðinn Sime Vrsaljko.
Það voru rúmlega tvær mínútur eftir af venjulegum leiktíma er boltinn var á leið útaf og enginn maður nálægt en þá mætti Vrsaljko á ferðinni og tók hressilega tveggja fóta tæklingu í loftið og rann útaf vellinum.
Erfitt er að útskýra hvað honum gekk til en hægt er að sjá myndband af þessu atviki hér fyrir neðan.
- Mas o Vrsaljko lesiona tanto...
— Atleti Brasil 🏆 CAMPEONES 🏆 (@AtletiBrasil) June 6, 2021
O Vrsaljko no minuto 87 de um amistoso:
pic.twitter.com/DLnPDfKVS0
Athugasemdir