Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
   þri 07. júní 2022 23:06
Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Pétur: Ágætis leikur hjá okkur á mörgum köflum
Kvenaboltinn
Pétur Pétursson, þjálfari Vals
Pétur Pétursson, þjálfari Vals
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pétur Pétursson, þjálfari Vals var að vonum sáttur með 6-1 sigur á Aftureldingu í 8. umferð Bestu-deildar kvenna í kvöld. Hann vildi hrósa liði Aftureldingar eftir leik.

„Þetta var ágætis leikur hjá okkur á mörgum köflum en ég ætla að hrósa Aftureldingu fyrir sinn leik líka. Þær eru að spila fótbolta og reyna að sækja, með allt þetta bras sem þær eru búnar að lenda í og ég ætla að gefa þeim bara mikið hrós fyrir þennan leik," sagði Pétur.


Lestu um leikinn: Valur 6 -  1 Afturelding

„Mér fannst við byrja þennan leik vel og í rauninni vorum við komnar í 3-0 og þá var eiginlega leikurinn búinn. Þannig að mér fannst þetta bara fínn leikur, hann var kaflaskiptur svolítið og mikið af skiptingum líka þannig það breytir líka svolítið landslaginu."

Nú styttist í að landsliðshópurinn fyrir EM verði tilkynntur. Pétur vill sjá Elínu Mettu og fullt af Völsurum í hópnum.

„Jájá, ég vill sjá hana í hópnum. Jájá, helling af leikmönnum frá Val," sagði Pétur léttur að lokum.


Slapp
banner
banner
banner