Klukkan 14:00 hefst leikur Englands og Svíþjóðar í 8-liða úrslitum Heimsmeistaramótsins í fótbolta. Margir landsmenn eru spenntir fyrir þessum leik enda er enski fótboltinn mjög vinsæll hér á landi og margir sem styðja enska landsliðið.
Sjá einnig:
Ingó Veðurguð spáði í spilin fyrir leikinn
England byrjar með sama lið og byrjaði gegn Kólumbíu í 16-liða úrslitunum. Sá leikur fór alla leið í vítaspyrnukeppni og þar var það England sem hafði betur.
Dele Alli heldur sæti sínu í byrjunarliðinu eftir að hafa misst áður af leikjum vegna meiðsla.
Emil Krafth kemur inn í byrjunarlið Svíþjóðar fyrir Mikael Lustig og Sebastian Larsson snýr aftur eftir leikbann hjá Svíþjóð.
Leikurinn hefst eins og áður segir klukkan 14:00.
Svíþjóð: Olsen, Krafth, Lindelof, Granqvist, Augustinsson, Larsson, Ekdal, Forsberg, Claesson, Berg, Toivonen.
England: Pickford, Walker, Stones, Maguire, Trippier, Lingard, Henderson, Alli, Young, Sterling, Kane.
#SWEENG // TEAM NEWS
— FIFA World Cup 🏆 (@FIFAWorldCup) July 7, 2018
Here are your Starting XIs, #SWE and #ENG fans! #WorldCup pic.twitter.com/f0lrHTYfh9
Athugasemdir