„Stemningin í klefanum eftir leik var gríðarlega góð. Menn eru hrikalega sáttir við þetta," segir Atli Arnarson sem skoraði bæði mörk HK í sigrinum gegn Breiðabliki í kvöld.
Mikilvæg stig fyrir HK í botnbaráttunni, vægast sagt.
Mikilvæg stig fyrir HK í botnbaráttunni, vægast sagt.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 2 HK
„Við misstum leikinn í Kórnum niður (fyrri viðureignina gegn Blikum í deildinni (endaði 2-2)) en hrikalega sætt að klára þetta í dag. Við höfum aldrei misst trúna þó við höfum verið að missa einhverja leiki í jafntefli eða tap í lokin."
„Það voru mikil átök og barátta í þessum leik, sérstaklega í lokin. Boltinn var mikið í loftinu."
Athugasemdir