Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 07. júlí 2019 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp: Brewster mun leika stórt hlutverk í framtíðinni
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp hefur miklar mætur á ungstirni Liverpool Rhian Brewster sem er 19 ára gamall.

Brewster er framherji sem hefur gert 24 mörk í 28 leikjum fyrir yngri landslið Englands. Hann hefur þó glímt við meiðsli að undanförnu og ekki búinn að spila landsleik í rúmt ár.

Hann á enn eftir að spila fyrir aðallið Liverpool en var mikið á milli tannanna á fólki í fyrra vegna áhuga frá Borussia Mönchengladbach. Liverpool náði þó að halda ungstirninu sínu.

„Rhian er ótrúlega hæfileikaríkur. Hann mun leika stórt hlutverk hjá þessu félagi í framtíðinni. Hann glímdi við mikið af meiðslavandræði á síðasta tímabili en ef hann nær að halda sér heilum þá býst ég við miklu af honum. Sama á við um hina strákana," sagði Klopp og átti þá við Alex Oxlade-Chamberlain, Joe Gomez og Adam Lallana sem hafa allir verið að glíma við meiðsli.
Athugasemdir
banner
banner
banner