HK er með montréttinn í Kópavogi eftir 2-1 sigur gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli í kvöld.
HK-ingar komust upp úr fallsæti með sigrinum, en Blikar eru núna sjö stigum á eftir KR í baráttunni um efsta sæti deildarinnar.
HK-ingar komust upp úr fallsæti með sigrinum, en Blikar eru núna sjö stigum á eftir KR í baráttunni um efsta sæti deildarinnar.
Brynjar Jónasson, framherji HK, birtir í kvöld myndband á Twitter sem birt var á Blikar.is í aðdraganda leiksins.
„Það er ekki fræðilegur að Kópavogur verður rauður á sunnudaginn. Hann er grænn, er búinn að vera grænn og verður áfram grænn," sagði Gunnleifur Gunnleifsson, markvöður Blika, í myndbandinu og taka aðrir leikmenn liðsins undir orð hans.
Myndbandið má sjá hér að neðan.
Ekki fræðilegur 😕🔴⚪️ https://t.co/2sFslvGweD
— Elbrynjo (@binnijo) July 7, 2019
Athugasemdir