Í úrslitaleiknum í dag komust Bandaríkin yfir með marki úr vítaspyrnu eftir rúman klukkutíma. Nokkur umræða skapaðist um vítaspyrnudóminn á samfélagsmiðlum.
Alex Morgan var að koma að boltanum er Stefani van der Dragt kom á ferðinni með fótinn hátt á lofti og fór í öxlina á Morgan. Dómarinn dæmdi vítaspyrnuna eftir að hafa skoðað atvikið með hjálp VAR.
Margrét Lára Viðarsdóttir sagði á RÚV eftir leikinn að dómurinn hefði verið réttur. „Varnarmaðurinn er klaufi, sér hana aldrei og hún kemur á blindu hliðina á Hollendingnum. Hún lyftir fætinum í stöðu sem fótur á ekki að vera í."
„Svo er það spurning hvort dómarinn hefði ekki dæmt þetta ef ekki hefði verið fyrir VAR-ið. Það er það sem maður getur pirrað sig á stundum," sagði Margrét.
Hægt er að sjá atvikið hérna á vefsíðu RÚV. Er þetta vítið eða ekki. Hér að neðan má sjá brot af umræðunni á Twitter.
Jæja, nú má endanlega henda þessu VAR drasli út í hafsauga! #USAvNED #fotboltinet
— Haraldur Ingólfsson (@Halli_Ingolfs) July 7, 2019
Nei biddu er VAR að eyðileggja úrslitaleik HM kvk eins og fullt af öðrum leikjum á mótinu? Trúi því ekki! Hversu þreytt er þetta VAR! Var aldrei á vagninum og verð aldrei einmitt útaf svona dómum! #fotboltinet
— orri rafn (@OrriRafn) July 7, 2019
Rétt ákvörðun og fín framkvæmd. Hvað var verið að eyðileggja?
— Thorir Hakonarson (@THakonarson) July 7, 2019
VAR er að eyðileggja HM kvenna.
— Bára K. Rúnarsdóttir (@bararunars) July 7, 2019
Hvaða þvæla er þessi vítaspyrnudómur!#fotboltinet
Hversu lélegur dómari ertu ef þú getur ekki dæmt rétt eftir VAR? En ein grín dómgæslan i kvk boltanum #fotboltinet
— Óskar G Óskarsson (@Oggi_22) July 7, 2019
Það sem VAR hefur gert fyrir HM kvenna er að það þorir enginn að fara í contact í boltamann inní teig því það er alltaf dæmt víti við minnstu snertingar. Gjörsamlega glórulaust. Þetta er contact sport nema inní vítateig greinilega #fotboltinet
— magnus bodvarsson (@zicknut) July 7, 2019
Veit ekki hvort Haukur Harðarson er það mikið á móti VAR að hann neitar að viðurkenna þegar VAR dæmir rétt. En þetta víti sem USA fékk var 100% réttur dómur, varnarleikurinn er einfaldlega slakur og skiptir engu hvort sparkið í öxlina er óvart eða ekki - það er leikbrot #USANED
— Smári Jökull Jónsson (@smarijokull) July 7, 2019
Sammála. Hræðilegur varnarleikur!
— Freyr Alexandersson (@freyrale) July 7, 2019
Þetta er soft og enginn vill að þetta sé dæmt. En facta er að varnarmaðurinn er clumsy. Því miður.