Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 07. júlí 2019 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mitrovic heldur tryggð við Fulham
Mynd: Getty Images
Aleksandar Mitrovic hefur ákveðið að taka slaginn með Fulham í ensku Championship-deildinni á næsta tímabili.

Sóknarmaðurinn er búinn að skrifa undir nýjan fimm ára samning við Fulham.

Hinn 24 ára gamli Mitrovic skoraði 11 mörk í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, en náði ekki að koma í veg fyrir fall Fulham úr deildinni.

Eftir góða lánsdvöl keypti Fulham hann frá Newcastle fyrir 22 milljónir punda í fyrra.

„Það voru mörg félög sem höfðu áhuga en á endanum ákvað ég að vera hér áfram því hér er ég mjög ánægður og búinn að koma mér mjög vel fyrir," sagði hinn 24 ára gamli Mitrovic við heimasíðu Fulham.
Athugasemdir
banner
banner