banner
   sun 07. júlí 2019 12:27
Brynjar Ingi Erluson
Sun segir Jón Daða á leið til Millwall
Mynd: Getty Images
Enski miðillinn The Sun greindi frá því nú rétt í þessu að Jón Daði Böðvarsson, leikmaður Reading, væri á leið til B-deildarliðsins Millwall fyrir 750 þúsund pund.

Jón Daði er 27 ára gamall og kom til Reading frá Wolves árið 2017 en hann lék 36 leiki og skoraði 10 mörk á fyrsta tímabilinu sínu á meðan hann missti af mörgum leikjum á síðustu leiktíð þar sem hann gerði 6 mörk í 19 leikjum.

Það hefur mikið gengið á hjá Reading í sumar en liðið hafnaði í 20. sæti á tímabilinu og hefur Jonathan Low, einn helsti fréttamaðurinn sem skrifar um Reading, sagt að það séu margir á förum frá félaginu.

The Sun skrifar í dag frétt um að Jón Daði sé á leið til Millwall fyrir 750 þúsund pund og að hann gangi frá öllum helstu smáatriðum á næstu dögum.

Það verðu fróðlegt að fylgjast með framvindu mála en Jose Manuel Gomes, knattspyrnustjóri Reading, hefur ekkert tjáð sig um framtíð Jóns til þessa.

Hann á 42 A-landsleiki og 2 mörk fyrir Ísland en hann lék einmitt í 2-1 sigrinum á Tyrklandi sem fór fram á Laugardalsvelli í júní.
Athugasemdir
banner
banner
banner