Fotbolti.net
07.07.20 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson

England: Chelsea vann - Norwich að kveðja úrvalsdeildina

England: Chelsea vann - Norwich að kveðja úrvalsdeildina
Canon

Mynd: Getty Images

Crystal Palace og Chelsea áttust við í hörku Lundúnaslag í dag þar sem mikið var undir hjá lærisveinum Frank Lampard sem eru í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti.
Olivier Giroud byrjaði leikinn og skoraði strax á sjöttu mínútu eftir góðan undirbúning frá Willian. Willian slapp í gegn eftir að Gary Cahill, fyrrum liðsfélagi hans hjá Chelsea, féll til jarðar. Cahill virtist togna er hann spretti eftir Willian og var tekinn af velli.

Christian Pulisic tvöfaldaði forystu Chelsea eftir sendingu frá Willian og minnkaði Wilfried Zaha muninn með mögnuðu marki skömmu síðar. Hann lét þá vaða af 25 metra færi og var skotið óverjandi fyrir Kepa Arrizabalaga í markinu.

Liðin skiptust á að sækja og var leikurinn afar spennandi. Chelsea verðskuldaði forystuna í leikhlé og bættu bæði lið mörkum við leikinn í síðari hálfleik.

Tammy Abraham var skipt inn og það tók hann aðeins sex mínútur að skora, eftir góðan undirbúning frá Ruben Loftus-Cheek. Einni mínútu síðar minnkaði Christian Benteke muninn.

Heimamenn komust nokkrum sinnum nálægt því að jafna í uppbótartíma en inn vildi boltinn ekki. Chelsea er í þriðja sæti eftir sigurinn, fimm stigum á undan Manchester United sem á leik til góða. Crystal Palace siglir áfram lygnan sjó í neðri hlutanum.

Crystal Palace 2 - 3 Chelsea
0-1 Olivier Giroud ('6)
0-2 Christian Pulisic ('27)
1-2 Wilfried Zaha ('34)
1-3 Tammy Abraham ('71)
2-3 Christian Benteke ('72)

Watford tók þá á móti Norwich og er svo gott sem búið að fella nýliðana.

Emiliano Buendia kom gestunum yfir með laglegu snemma leiks en Craig Dawson var snöggur að svara fyrir heimamenn með skallamarki eftir aukaspyrnu.

Liðin skiptust á að sækja í opnum leik og var staðan jöfn þar til á 55. mínútu þegar Danny Welbeck skoraði frábært mark eftir skyndisókn.

Misheppnuð hreinsun hjá varnarmanni Norwich leiddi til þess að Welbeck gat tekið bakfallsspyrnu sem endaði í netinu.

Watford er núna fjórum stigum frá fallsæti á meðan Norwich er áfram á botninum, tíu stigum frá öruggu sæti þegar aðeins fjórar umferðir eru eftir.

Watford 2 - 1 Norwich
0-1 Emiliano Buendia ('4)
1-1 Craig Dawson ('10)
2-1 Danny Welbeck ('55)
England: Chelsea vann - Norwich að kveðja úrvalsdeildina
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Aston Villa9-312
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.