Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 07. ágúst 2018 09:30
Magnús Már Einarsson
Aron ætlar ekki að missa aftur af fæðingu - Ekki með í fyrsta leik?
Icelandair
Aron og Kristbjörg Jónasdóttir eiginkona hans eiga von á dreng í september.
Aron og Kristbjörg Jónasdóttir eiginkona hans eiga von á dreng í september.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, verður mögulega fjarri góðu gamni þegar Ísland mætir Sviss í fyrsta leik í Þjóðadeildinni þann 8. september næstkomandi.

Aron Einar og Kristbjörg Jónasdóttir, eiginkona hans, eiga von á sínu öðru barni í byrjun september en þá kemur strákur í heiminn.

Árið 2015 var Aron staddur í landsliðsverkefni í Kasakstan þegar Óliver, sonur þeirra hjóna, kom í heiminn. Hann ætlar ekki að missa aftur af fæðingu í september.

„Það verður að koma í ljós hvort ég nái fyrsta leik út af barneign hjá okkur," sagði Aron í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

„Ég ætla ekki að missa af því eins og síðast. Það var tekið í gegnum Facetime síðast. Maður verður að vera viðstaddur í þetta skipti."

Ísland mætir Sviss á útivelli 8. september í Þjóðadeildinni en þremur dögum síðar koma Belgar í heimsókn á Laugardalsvöll.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner