Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 07. ágúst 2019 17:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Breiðabliks og KA: Alfons inn í liðið
Alfons Sampsted.
Alfons Sampsted.
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Elfar byrjar hjá KA.
Elfar byrjar hjá KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er áhugaverður leikur sem hefst klukkan 18:00 í Pepsi Max-deild karla. Breiðablik og KA eigast við á Kópavogsvelli.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Blikar hafa ekki unnið fótboltaleik síðan 22. júní síðastliðinn. Þrátt fyrir það er liðið enn í 2. sæti deildarinnar. Það munar þó 13 stigum á Blikum og efsta liðinu, KR. KA hefur ollið vonbrigðum í sumar og er í fallsæti, þrátt fyrir sigur gegn FH í síðustu umferð.

Byrjunarliðin fyrir leikinn á Kópavogsvelli í kvöld hafa skilað sér. Damir Muminovic er í banni og kemur félagi hans, Elfar Freyr Helgason, inn í hans stað. Alfons Sampsted leikur þá sinn fyrsta leik fyrir Blika í sumar, en hann er í láni frá IFK Norrköping í Svíþjóð. Hann kom í sumarglugganum.

Hjá KA er Hrannar Björn Steingrímsson í leikbanni og einnig detta David Cuerva og Steinþór Freyr Þorsteinsson úr byrjunarliðinu. Inn koma Elfar Árni Aðalsteinsson, Andri Fannar Stefánsson og Alexander Groven.

Byrjunarlið Breiðabliks:
1. Gunnleifur Gunnleifsson (m)
5. Elfar Freyr Helgason
6. Alexander Helgi Sigurðarson
7. Gísli Eyjólfsson
8. Viktor Karl Einarsson
9. Thomas Mikkelsen
10. Guðjón Pétur Lýðsson
11. Höskuldur Gunnlaugsson
21. Viktor Örn Margeirsson
25. Davíð Ingvarsson
26. Alfons Sampsted

Byrjunarlið KA:
1. Aron Dagur Birnuson (m)
2. Haukur Heiðar Hauksson
7. Almarr Ormarsson (f)
8. Iosu Villar
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson
14. Andri Fannar Stefánsson
16. Brynjar Ingi Bjarnason
19. Alexander Groven
49. Ívar Örn Árnason

Leikir kvöldsins:
18:00 Breiðablik-KA (Kópavogsvöllur)
19:15 Stjarnan-Víkingur R. (Samsung völlurinn)
19:15 Valur-Fylkir (Origo völlurinn)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner