Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 07. ágúst 2019 18:27
Magnús Þór Jónsson
Byrjunarlið Vals og Fylkis: Anton Ari í markinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið kvöldsins á Origovellinum eru klár. Valur og Fylkir eigast þar við klukkan 19:15.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Eins og rætt hafði verið er landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson meiddur og í hans stað stendur Anton Ari Einarsson milli stanganna hjá heimamönnum.

Auk þessarar breytingar koma Eiður Aron Sigurbjörnsson og Ólafur Karl Finsen inn í byrjunarlið heimamanna frá í síðasta leik, á bekkinn setjast þeir Einar Karl Ingvarsson og Orri Sigurður Ómarsson.

Það eru einnig þrjár breytingar á byrjunarliði Fylkismanna frá 1-4 tapinu fyrir KR. Kolbeinn Finnsson er farinn aftur út til Brentford og Ólafur Ingi Skúlason og Daði Ólafsson eru í leikbanni. Í stað þessara koma inn í liðið þeir Orri Sveinn Stefánsson, Emil Ásmundsson og Ragnar Bragi Sveinsson.

Byrjunarlið Vals:
33. Anton Ari Einarsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
6. Sebastian Hedlund
7. Haukur Páll Sigurðsson (f)
9. Patrick Pedersen
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson
17. Andri Adolphsson
21. Bjarni Ólafur Eiríksson
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
71. Ólafur Karl Finsen

Byrjunarlið Fylkis:
32. Stefán Logi Magnússon (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
5. Orri Sveinn Stefánsson
6. Sam Hewson
8. Emil Ásmundsson
10. Andrés Már Jóhannesson
11. Valdimar Þór Ingimundarson
19. Ragnar Bragi Sveinsson
20. Geoffrey Castillion
23. Ari Leifsson
28. Helgi Valur Daníelsson (f)

Leikir kvöldsins:
18:00 Breiðablik-KA (Kópavogsvöllur)
19:15 Stjarnan-Víkingur R. (Samsung völlurinn)
19:15 Valur-Fylkir (Origo völlurinn)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner