Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 07. ágúst 2019 15:15
Magnús Már Einarsson
Crystal Palace hækkar tilboð sitt í Chalov
Fedor Chalov fagnar marki með Arnóri SIgurðssyni og Herði Björgvini Magnússyni.
Fedor Chalov fagnar marki með Arnóri SIgurðssyni og Herði Björgvini Magnússyni.
Mynd: Getty Images
Crystal Palace hefur lagt fram nýtt 23 milljóna punda tilboð í Fedor Chalov framherja CSKA Moskvu.

CSKA hafnaði í síðustu viku 14 milljón punda tilboði frá Palace í leikmanninn.

Chalov er 21 árs gamall en hann hefur skorað 29 mörk í 69 deildarleikjum með CSKA.

Crystal Palac vill styrkja sóknarleikinn fyrir komandi tímabil og félagið gæti reynt við fleiri sóknarmenn ef Wilfried Zaha endar á að fara til Everton.

Zaha hefur formlega óskað eftir sölu en Everton er að reyna að kaupa hann.
Athugasemdir
banner