Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 07. ágúst 2019 15:37
Magnús Már Einarsson
David Luiz í verkfalli - Vill fara til Arsenal
Neitaði að æfa í dag.
Neitaði að æfa í dag.
Mynd: Getty Images
David Luiz, varnarmaður Chelsea, neitaði að æfa með liðinu í dag en hann vill ganga í raðir Arsenal.

Luiz er ekki öruggur með sæti í byrjunarliði Chelsea og hann vill fara til Arsenal áður en félagaskiptaglugginn lokar á morgun.

Ekkert formlegt tilboð hefur ennþá borist frá Arsenal en rúmur sólarhringur er í að glugginn loki.

Edu, yfirmaður íþróttamála hjá Arsenal, er hrifinn af hugmyndinni að fá Luiz til félagsins en þeir eru báðir frá Brasilíu.

Luiz er 32 ára gamall en hann hefur verið hjá Chelsea frá 2011 að undanskildum árunum 2014 til 2016 þegar hann lék með PSG.
Athugasemdir
banner