„Hann var mjög leiður í undirbúningsleikjunum," sagði Hjálmar Örn Jóhannsson um Christian Eriksen í ensku upphituninni í dag.
Eriksen hefur lýst því yfir að hann vilji fara frá Tottenham. Eriksen var orðaður við Manchester United í gær en nú er sagt að hugur hans leiti til Spánar og Real Madrid hefur verið nefnt í því samhengi.
Eriksen hefur lýst því yfir að hann vilji fara frá Tottenham. Eriksen var orðaður við Manchester United í gær en nú er sagt að hugur hans leiti til Spánar og Real Madrid hefur verið nefnt í því samhengi.
„Í grunninn er þetta danska heilkennið. Danir eru gamlir nýlenduherrar. Hann vill leggja undir sig fleiri lönd og þetta snýst svolítið um að geta pósað á Strikinu eftir nokkur ár og geta sagst hafa spilað á Spáni og Englandi. Ég held að hann vilji tikka í þau box," sagði Jóhann Alfreð Kristinsson í ensku upphituninni.
Eriksen verður samningslaus næsta sumar og því gæti Tottenham selt hann núna.
„Ég vil hiklaust að hann fari núna. Það er nánast ljóst að hann skrifar ekki undir nýjan samning og Daniel Levy (formaður Tottenham) missir ekki af 50-70 milljón punda leikmann frítt eftir tólf mánuði," sagði Ingimar Helgi Finnsson.
Hér að neðan má hlusta á þáttinn í heild sinni.
Skráðu þig í Draumaliðsdeild Budweiser og Fótbolta.net
Verðlaun í boði Budweiser eftir allar umferðir.
Kóðinn til að skrá sig er: sjkbpw
Skráðu þitt lið til leiks!
Athugasemdir