West Ham er á góðri leið með að ganga frá kaupum á Albian Ajeti framherja Basel í Sviss.
Félögin eru að ná samkomulagi um kaupverð upp á átta milljónir punda.
Albian mun fá 50 þúsund pund í vikulaun hjá Hömrunum samkvæmt frétt Sky.
Félögin eru að ná samkomulagi um kaupverð upp á átta milljónir punda.
Albian mun fá 50 þúsund pund í vikulaun hjá Hömrunum samkvæmt frétt Sky.
Hinn 22 ára gamli Albian hefur raðað inn mörkum hjá Basel síðan hann kom til félagsins frá St. Gallen fyrir tveimur árum.
Framherjar West Ham hafa ekki skilað nægilega mikið af mörkum undanfarin tímabil en félagið keypti fyrr í sumar Sebastien Haller frá Frankfurt og miklar vonir eru bundnar við hann.
Athugasemdir