Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 07. ágúst 2019 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gunnar Jarl snýr aftur og dæmir í 4. deild
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Jarl Jónsson mun taka fram flautuna aftur á morgun þegar hann dæmir leik Vatnalilja og Ýmis í 4. deild karla.

Sjá einnig:
Vatnaliljur - Ýmir dómarar (KSÍ)

Gunnar Jarl byrjaði að dæma af krafti 2007 og var um árabil besti dómari landsins áður en hann lagði flautuna á hilluna fyrir síðasta tímabil.

Gunnar hefur verið að starfa hjá KSÍ við að efla dómgæslu, en hann mætir aftur til leiks á morgun.

Leikur Vatnalilja og Ýmis er í A-riðli 4. deildar karla og hefst hann klukkan 19:00. Fyrir leikinn er Ýmir í öðru sæti riðilsins með 22 stig og Vatnaliljur í sjötta sæti með 10 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner