Ítalska félagið Inter hefur gert nýtt tilboð í belgíska sóknarmanninn Romelu Lukaku, Sky Sports greinir frá.
Sagt er að forráðamenn Inter séu mjög bjartsýnir á að fá Lukaku í sínar raðir en að kaupverðið geti með klásúlum farið upp í rúmlega 76 milljónir punda.
Sagt er að forráðamenn Inter séu mjög bjartsýnir á að fá Lukaku í sínar raðir en að kaupverðið geti með klásúlum farið upp í rúmlega 76 milljónir punda.
Sky Sport Italia segir að Federico Pastorello, umboðsmaður Romelu Lukaku, hafi flogið til London í morgun til að funda með Steven Zhang, forseta Inter.
Manchester United sektaði Lukaku fyrir að mæta ekki til æfinga en hann hefur verið að æfa með unglingaliði Anderlecht í Belgíu í þessari viku.
Félagaskiptaglugginn á Englandi lokar á morgun en glugginn er áfram opinn á Ítalíu og því liggur ekki of mikið á. Lukaku gæti verið seldur síðar í þessum mánuði.
Inter have submitted a fresh bid for Lukaku, an initial fee of £64.7m, with add-ons. Story on @MirrorFootball #MUFC
— David McDonnell (@DiscoMirror) August 7, 2019
Athugasemdir