Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 07. ágúst 2019 10:35
Magnús Már Einarsson
Manchester United ætlar að sekta Lukaku
Mynd: Getty Images
Manchester United ætlar að sekta Romelu Lukaku fyrir að hafa sleppt því að mæta á æfingar hjá liðinu í vikunni.

Hinn 26 ára gamli Lukaku hefur æft með sínu gamla félagi Anderlecht í Belgíu undanfarna tvo daga.

Framtíð Lukaku er í óvissu en bæði Inter og Juventus hafa verið að reyna að fá hann í sínar raðir.

Lukaku hefur ekkert komið við sögu á undirbúningstímabilinu hjá United en hann er ekki með leyfi hjá félaginu til að vera í Belgíu við æfingar.

Félagaskiptaglugginn á Englandi lokar á morgun en glugginn er áfram opin á Ítalíu og því gæti Lukaku verið seldur síðar í þessum mánuði.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner