Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 07. ágúst 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Shaw: Enginn átti skilið að vera leikmaður tímabilsins
Mynd: Getty Images
Luke Shaw, vinstri bakvörður Manchester United, segir að enginn leikmaður hafi átt skilið að vera valinn besti leikmaður tímabilsins hjá liðinu á síðasta tímabili.

Shaw var valinn leikmaður tímabilsins hjá United í vor en liðið endaði í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

„Ég tel að enginn hafi verðskuldað að vera valinn leikmaður tímabilsins út af því hvernig tímabil við áttum sem lið," sagði Shaw.

„Ég get gert betur og allir þurfa að gera betur því að síðasta tímabil var nálægt því að vera vandræðalegt."

Manchester United mætir Chelsea í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner