Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 07. ágúst 2019 21:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sky: Real í viðræðum um kaup á Neymar
Neymar og landi hans, Thiago Silva.
Neymar og landi hans, Thiago Silva.
Mynd: Getty Images
Real Madrid er í viðræðum við frönsku meistarana í Paris Saint-Germain um kaup á Brasilíumanninum Neymar. Þetta segja heimildarmenn Sky Sports.

Neymar var seldur frá Barcelona til Paris Saint-Germain árið 2017 fyrir metfé eða 200 milljónir punda, en hann er orðinn þreyttur á lífinu í París og vill fara annað.

Mikið hefur verið rætt og skrifað um mögulega endurkomu hans til Barcelona, en Real Madrid hefur líka áhuga.

PSG á enn eftir að fá formlegt tilboð í Neymar, en félagið vill eflaust fá aftur þær 200 milljónir sem félagið eyddi í Neymar.

Það hefur verið nóg að gera hjá Real Madrid í sumar eftir að félagið endaði 19 stigum frá Barcelona á síðasta tímabili. Eden Hazard, Luka Jovic, Eder Militao, Ferland Mendy og Rodrygo hafa allir komið til félagsins.

Félagaskiptaglugginn á Spáni er opinn þangað til í byrjun september.
Athugasemdir
banner
banner
banner