Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 07. ágúst 2019 10:10
Magnús Már Einarsson
Wright lætur Koscielny heyra það fyrir myndband
Koscielny var í níu ár hjá Arsenal.
Koscielny var í níu ár hjá Arsenal.
Mynd: Getty Images
Ian Wright, næstmarkahæsti leikmaður í sögu Arsenal, er allt annað en ánægður með Laurent Koscielny fyrrum fyrirliða liðsins.

Koscielny samdi í gær við Bordeaux í Frakklandi eftir langt og strangt sumar.

Koscielny vildi fara frítt frá Arsenal og eftir miklar vangaveltur var hann loks seldur í gær á tæpar fimm milljónir punda.

Bordeaux kynnti Koscielny til leiks með myndbandi þar sem leikmaðurinn klæðir sig úr treyju Arsenal og sést þá í treyju franska félagsins.

Myndbandið má sjá hér að neðan en Wright hafði engan húmor fyrir því. Wright segir að Koscielny eigi að skammast sín!


Athugasemdir
banner