
„Mér fannst þetta mjög góður leikur hjá okkur og er mjög ánægður með stelpurnar í dag," sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, eftir útisigur á Þór/KA í Bestu deildinni í kvöld.
Bæði lið fengu vítaspyrnu í leiknum sem skorað var úr, fyrst jafnaði Þór/KA með marki úr vítaspyrnu og svo skoraði Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir sigurmarkið fyrir Val úr vítaspyrnu þegar sjö mínútur lifðu leiks.
Bæði lið fengu vítaspyrnu í leiknum sem skorað var úr, fyrst jafnaði Þór/KA með marki úr vítaspyrnu og svo skoraði Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir sigurmarkið fyrir Val úr vítaspyrnu þegar sjö mínútur lifðu leiks.
Lestu um leikinn: Þór/KA 1 - 2 Valur
„Þetta er alltaf þessi stóra spurning með dómana, ég held þetta hafi verið hendi í bæði skiptin, en var aðeins að pæla í því hvort að mín kona fékk boltann ekki í skrokkinn fyrst og svo í hendina. Þá finnst mér það oft ekki vera víti, en ég er ekki með héraðsprófið í dómgæslu, er ekki góður þar."
„Þetta er búið að vera svolítið erfitt tímabil hjá okkur. Mér leið eins og ég hefði séð mjög gott Valslið á vellinum í dag, er mjög stoltur af því að vera þjálfari Valsliðsins og er extra stoltur í dag," sagði Matti.
Besta-deild kvenna
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Breiðablik | 13 | 11 | 1 | 1 | 52 - 9 | +43 | 34 |
2. FH | 11 | 8 | 1 | 2 | 26 - 12 | +14 | 25 |
3. Þróttur R. | 11 | 8 | 1 | 2 | 24 - 11 | +13 | 25 |
4. Þór/KA | 12 | 6 | 0 | 6 | 20 - 20 | 0 | 18 |
5. Valur | 13 | 5 | 3 | 5 | 16 - 19 | -3 | 18 |
6. Stjarnan | 12 | 5 | 0 | 7 | 15 - 24 | -9 | 15 |
7. Fram | 12 | 5 | 0 | 7 | 16 - 30 | -14 | 15 |
8. Tindastóll | 12 | 4 | 1 | 7 | 17 - 23 | -6 | 13 |
9. Víkingur R. | 11 | 3 | 1 | 7 | 18 - 27 | -9 | 10 |
10. FHL | 11 | 0 | 0 | 11 | 5 - 34 | -29 | 0 |
Athugasemdir