Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 07. september 2019 16:00
Brynjar Ingi Erluson
Balotelli opnaði markareikninginn
Mario Balotelli gekk til liðs við Brescia á dögunum
Mario Balotelli gekk til liðs við Brescia á dögunum
Mynd: Getty Images
Ítalski framherjinn Mario Balotelli skoraði fyrsta mark sitt fyrir ítalska félagið Brescia í dag er liðið vann 3-2 sigur á Frosinone í vináttuleik.

Balotelli er 29 ára gamall en hann kom til Brescia á dögunum á frjálsri sölu eftir hann ákvað að framlengja ekki samning sinn við franska félagið Marseille.

Hann er í banni í fjórum leikjum en heldur sér við á meðan og skoraði meðal annars fyrir Brescia í dag.

Þetta var fyrsta mark hans fyrir félagið en hann gerði fyrsta markið í upphafi leiksins.

Þetta var annar leikurinn sem hann spilar en Brescia heldur leikmönnum heitum á meðan landsleikjahléið er í gangi.


Athugasemdir
banner
banner