Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 07. nóvember 2018 21:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Ronaldo með magnað mark gegn Man Utd
Mynd: Getty Images
Portúgalska ofurstjarnan Cristiano Ronaldo er búinn að koma Juventus yfir gegn gömlu félögunum í Manchester United.

Markið kom á 65. mínútu og var það af dýrari gerðinni.

Ronaldo fékk góða sendingu inn fyrir vörn Manchester United frá varnarmanninum Leonardo Bonucci. Ronaldo sleppti því að taka boltann niður, hann tók hann bara í fyrsta og smellhitti hann. David de Gea átti engan séns í marki Man Utd.

Frábært mark hjá þessum magnaða leikmanni.

Smelltu hér til að sjá markið.

Ronaldo fagnaði með því að hlaupa út að hornfánanum og sýna magavöðvanna.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner